Aðalfundur Brims hf.
Niðurstöður aðalfundar Brims hf. 24. mars 2022
Niðurstöður aðalfundar 24. mars 2022
Aðalfundur samþykkti ársreikning félagsins.
Fundurinn samþykkti eftirtaldar tillögur:
Tillaga um greiðslu arðs
Samþykkt að arðgreiðsla á árinu 2022 vegna rekstrarársins 2021 verði 2,1 kr. á hlut í arð til hluthafa, eða 4.034 millj. kr. (um 27,3 millj. evra á lokagengi ársins 2021), eða 2,7% af markaðsvirði hlutafjár í lok árs 2021. Arðurinn verði greiddur 29. apríl 2022. Síðasti viðskiptadagur þar sem arður fylgir bréfunum er 24. mars 2022 og arðleysisdagur því 25. mars 2022. Arðsréttindadagur er 28. mars 2022. Arður greiðist þeim sem skráðir eru í hlutaskrá félagsins í lok arðsréttindadags.
Tillaga um starfskjarastefnu
Samþykkt óbreytt starfskjarastefna
Ákvörðun um þóknun stjórnarmanna
Samþykkt að þóknun næsta starfsárs til stjórnarmanna verði 330.000 kr. á mánuði, varaformaður fái einn og hálfan hlut og formaður tvöfaldan hlut.
Kosning stjórnar félagsins
Stjórn var sjálfkjörin þar sem frambjóðendur voru jafnmargir og þeir stjórnarmenn sem kjósa á um á fundinum og samsetning stjórnar fullnægir ákvæðum laga og samþykkta félagsins um kynjahlutföll. Stjórnina skipa: Anna G. Sverrisdóttir, Hjálmar Þ. Kristjánsson, Kristján Þ. Davíðsson, Kristrún Heimisdóttir og Magnús Gústafsson.
Á fyrsta stjórnarfundi nýrrar stjórnar skipti stjórnin með sér verkum og skipaði í nefndir. Formaður stjórnar er Kristján Þ. Davíðsson og varaformaður stjórnar er Anna G. Sverrisdóttir. Endurskoðunarnefnd: Gunnar Ásgeirsson formaður, Anna G. Sverrisdóttir og Kristrún Heimisdóttir. Starfskjaranefnd: Magnús Gústafsson formaður, Kristján Þ. Davíðsson og Kristrún Heimisdóttir. Þóknun nefndarmanna í undirnefndum næsta starfsár verður 110.000 kr. á mánuði.
Kosning endurskoðenda
Samþykkt að endurskoðandi félagsins fyrir næsta starfsár verði Deloitte ehf.
Tillaga um að stjórn fái heimild til kaupa á eigin bréfum
Aðalfundur veitir stjórn félagsins heimild til að kaupa eigin hluti í félaginu. Heimild þessi stendur í 18 mánuði og takmarkast við að samanlögð kaup fari ekki yfir 10% af heildarhlutafé félagsins á hverjum tíma. Kaupgengi má eigi vera hærra en í síðustu óháðu viðskiptum eða hæsta fyrirliggjandi óháða kauptilboð í þeim viðskiptakerfum þar sem viðskipti með hlutina fara fram, hvort sem hærra er. Heimild þessi skal aðeins nýtt í þeim tilgangi að koma á formlegri endurkaupaáætlun eða til þess að gera hluthöfum almennt tilboð um kaup félagsins á eigin bréfum, t.d. með útboðsfyrirkomulagi, enda sé jafnræðis hluthafa gætt við boð um þátttöku í slíkum viðskiptum. Aðrar eldri heimildir til kaupa á eigin bréfum falla úr gildi við samþykkt heimildar þessarar.
Viðhengi: