Aðalfundur Brims hf. - Niðurstöður
Niðurstöður aðalfundar Brim hf. 21. mars 2024
Aðalfundur samþykkti ársreikning félagsins.
Fundurinn samþykkti eftirfarandi tillögur:
1. Tillaga stjórnar um greiðslu arðs.
Samþykkt að arðgreiðsla á árinu 2024 vegna rekstrarársins 2023 verði 2,0 kr. á hlut í arð til hluthafa, eða 3.851 millj.kr. (um 25,6 millj.evra á lokagengi ársins 2023), eða 2,39% af markaðsvirði hlutafjár í lok árs 2023. Arðurinn verði greiddur 30. apríl 2024. Síðasti viðskiptadagur þar sem arður fylgir bréfunum er 21. mars 2024 og arðleysisdagur því 22. mars 2024. Arðsréttindadagur er 25. mars 2024. Arður greiðist þeim sem skráðir eru í hlutaskrá félagsins í lok arðsréttindadags.“
2. Tillaga stjórnar að starfskjarastefnu.
Samþykkt óbreytt starfskjarastefna.
3. Ákvörðun um þóknun stjórnarmanna.
Samþykkt að þóknun næsta starfsárs til stjórnarmanna verði 370.000 kr. á mánuði, varaformaður fá einn og hálfan hlut og formaður tvöfaldan hlut.
4. Kosning stjórnar félagsins.
Stjórn var sjálfkjörin þar sem frambjóðendur voru jafnmargir og þeir stjórnarmenn sem kjósa á um á fundinum. Stjórnina skipa:
- Anna G. Sverrisdóttir
- Hjálmar Þór Kristjánsson
- Kristján Þ. Davíðsson
- Kristrún Heimisdóttir
- Magnús Gústafsson
Á fyrsta stjórnarfundi nýrrar stjórnar skipti stjórnin með sér verkum og skipaði í undirnefndir stjórnar. Formaður stjórnar er Kristján Þ. Davíðsson og varaformaður stjórnar er Anna G. Sverrisdóttir.
Skipun í undirnefndir stjórnar
Endurskoðunarnefnd: Gunnar Ásgeirsson, formaður, Anna G. Sverrisdóttir og Kristrún Heimisdóttir. Þóknun nefndarmanna verður 175.000 kr. á mánuði og formaður með tvöfaldan hlut.
Starfskjaranefnd: Kristrún Heimisdóttir, formaður, Kristján Þ. Davíðsson og Magnús Gústafsson. Þóknun nefndarmanna verður 130.000 kr. á mánuði og formaður með tvöfaldan hlut.
5. Kosning endurskoðenda.
Samþykkt að endurskoðandi félagsins fyrir næsta starfsár verði Deloitte ehf.
6. Tillaga stjórnar um utanaðkomandi nefndarmann í endurskoðunarnefnd.
Samþykkt að Gunnar Þór Ásgeirsson, verði tilnefndur sem utanaðkomandi nefndarmaður í endurskoðunarnefnd félagsins.
7. Tillaga um að stjórn fái heimild til kaupa á eigin hlutum.
Aðalfundur samþykkti að veita stjórn félagsins heimild til að kaupa eigin hluti í félaginu. Heimild þessi stendur í 18 mánuði og takmarkast við að samanlögð kaup fari ekki yfir 10% af heildarhlutafé félagsins á hverjum tíma. Kaupgengi má eigi vera hærra en í síðustu óháðu viðskiptum eða hæsta fyrirliggjandi óháða kauptilboð í þeim viðskiptakerfum þar sem viðskipti með hlutina fara fram, hvort sem hærra er. Heimild þessi skal aðeins nýtt í þeim tilgangi að koma á formlegri endurkaupaáætlun eða til þess að gera hluthöfum almennt tilboð um kaup félagsins á eigin bréfum, t.d. með útboðsfyrirkomulagi, enda sé jafnræðis hluthafa gætt við boð um þátttöku í slíkum viðskiptum. Aðrar eldri heimildir til kaupa á eigin bréfum falla úr gildi við samþykkt heimildar þessarar.