Gott stórufsaskot á Eldeyjarbankanum
,,Ég held að menn gerðu margt vitlausra en að grennslast fyrir um það með örmerkjum hvaðan stórufsinn kemur. Stórufsi hefur ekki sést svo vikum skiptir á vertíðinni en svo kom gott skot í veiðina á Eldeyjarbankanum í lok síðustu viku. Við vorum að fá átta til tólf tonn af fimm til sjö kílóa ufsa í holi en yfirleitt toguðum við í tvo og hálfan og upp í fjóra og hálfan tíma í senn.”
Þetta segir Heimir Guðbjörnsson, skipstjóri á ísfisktogaranum Helgu Maríu AK. Togarinn er kominn á miðin að nýju og er nú staddur á Belgableyðunni, sunnan við Eldeyjarbankann.
,,Við erum á öðru holi og ufsaveiðin hefur tregast til muna. Við erum að fá um eitt tonn af stórufsa á togtímann og ætlum að halda okkur á þessum slóðum í von um að ufsaaflinn glæðist aftur,” segir Heimir en hann segist hafa byrjað síðasta túr á Eldeyjarbankanum og Fjöllunum.
,,Þar var þorskur, karfi og ýsa en stórufsinn var ekki mættur að ráði. Við fengum um tonn af ufsa á tímann en fréttir bárust þá af ágætri þorsk- og ýsuveiði með ufsa í bland á Tánni og Selvogsbankanum. Við fórum því þangað og fengum upp í þrjú tonn af stórufsa í holi með þorskinum og ýsunni. Þetta var þó skammgóður vermir og við hrökkluðumst í burtu í 20 m/sek og nístingsfrosti,” segir Heimir en um svipað leyti bárust fréttir af hinni góðu stórufsaveiði á Eldeyjarbankanum.
,,Þessi hrota er búin í bili en við bíðum rólegir eftir næstu gusu. Þetta verður stuttur túr hjá okkur. Við eigum að vera í höfn í Reykjavík snemma á föstudagsmorgun en það þýðir að við getum verið að veiðum næstu tvo sólarhringana. Það er hægara í dag en í langan tíma og vindurinn á enn að ganga niður á morgun,” segir Heimir Guðbjörnsson.