Grálúða
Reinhard hippoglossoides
Grálúða er stór flatfiskur og getur náð allt að 1,2 m lengd. Grálúða líkist lúðu í vextinum og hún er dökkgrá á báðum hliðum ólíkt öðrum flatfiskum sem eru ljósir á annarri hliðinni og dökkir á þeirri hlið sem upp snýr. Hægri hliðin snýr upp og er vinstra augað á hausröndinni. Hún er með stóran kjaft og beittar tennur, enda mikill ránfiskur. Fæða grálúðunnar er allskonar fiskar, t.d. loðna, en auk þess étur hún rækju, smokkfisk o.fl. Grálúða verður kynþroska 9 – 12 ára gömul. Grálúðan lifir á 250-1600 m dýpi í mjög köldum sjó, oft undir frostmarki. Hún er botnfiskur á leirbotni en flækist þó einnig mikið upp um sjó. Hún virðist vera sú flatfisktegund sem hvað minnst er háð botnlínu.
Samband við söludeildSjófryst
- Hausar, stærðarfl. 300 g- | 300-500 g | 500 g+
- H/G án sporðs, stærðarfl. 0,5-1 kg | 1-2 kg | 2-3 kg | 3 kg+,
- W/R, stærðarfl. 400-600 g | 600-900 g
- Sporður, ófl.
Umbúðir
2x13 kg
Ferskt
Ekki í boði
Landfryst
Ekki í boði
Næringargildi
Næringargildi í 100 g
- kj717
- kcal172
- prótein14,1
- fita12,9
- kolvetni0
- trefjar0
Fiskimið
Veiðitímabil
Allt árið
Fiskimið
Norðurvestur af landinu og úti fyrir Austurlandi.