Loðna
Mallotus villosus
Loðnan er smávaxinn beinfiskur. Algeng stærð loðnu sem er 3-4 ára gömul er um 13-20 cm. Loðnan er frekar löng og mjó. Hliðarrák loðnunnar er frekar bein en ofan við hana er loðnan dökk en aftur á móti ljós neðan við hana. Hreistrið er fínt og lint og tálknin alsett dökkum blettum. Kjaftur loðnunnar nær alveg aftur undir augu og er neðri skolturinn stærri en efri. Augun eru meðalstór og ofarlega á hausnum sem er lítill. Eyruggar, bakuggi og raufaruggi loðnunnar eru nokkuð stórir en kviðuggar og sporður í meðallagi. Loðnan dregur nafn sitt af því að rákin eftir endilöngum fiskum er loðin. Loðnan verður yfirleitt ekki eldri en 3-4 ára, hrygnir þá og deyr svo. Heimkynni loðnunnar eru nyrstu höf jarðarinnar þar sem hún er víða mjög útbreidd. Við Ísland finnst loðna allt í kringum landið. Loðnan er kaldsjávar- og uppsjávarfiskur sem leitar þó botns á grunnsævi til þess að hrygna. Mestan hluta ævinnar heldur íslenska loðnan sig úti á reginhafi norður af landinu. Aðal hrygningarstöðvarnar eru á grunnsævi við suður- og suðvesturströndina. Hrygning fer fram á sandbotni í um 10-150 metra dýpt í 2-10 gráðu heitum sjó. Loðnan hrygnir frá seinnihluta febrúar og er hrygningu oftast lokið um mánaðarmótin mars-apríl þegar sólin hefur náð að hita sjóinn í kjörhitastig hrygningar. Helstu hrygningarsvæði hérlendis eru með suður- og vesturströndinni. Loðna lifir mest á krabbaflóm eins og ljós- og rauðátu þó að einnig éti þær marflær.
Samband við söludeildSjófryst
Ekki í boði
Ferskt
Ekki í boði
Landfryst
- Heilfryst, stærðarflokkuð
- Hrogn
Umbúðir
Heilfryst, 20/30, 25/35, 30/40, 35/45, mix
Heilfryst kvennloðna, 41-45, 46-50, 51-55, 56-60
Hrogn
Næringargildi
Næringargildi í 100 g
- kj896
- kcal216
- prótein14
- fita17,8
- kolvetni0
- trefjar0
Fiskimið
Veiðitímabil
Desember - Mars
Fiskimið
Það er breytilegt eftir árum hvar uppsjávartegundir veiðast.